fös 27. febrúar 2015 17:00
Magnús Már Einarsson
Björn Hákon í Völsung (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markvörðurinn Björn Hákon Sveinsson hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt Völsung.

Björn Hákon var á síðasta ári á mála hjá Fylki en hann kom við sögu í tveimur leikjum í Pepsi-deildinni og tveimur leikjum í Borgunarbikarnum.

Björn, sem er fæddur árið 1985, spilaði síðast með Völsungi árið 2008.

Hann hefur nú ákveðið að taka slaginn með liðinu í 3. deildinni í sumar.

Björn Hákon kom til Fylkis fyrir síðasta tímabil en þar áður spilaði hann með Þór, KF og í Noregi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner