Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 27. febrúar 2015 07:30
Daníel Freyr Jónsson
Mark Noble hjá West Ham til 2020
Mark Noble.
Mark Noble.
Mynd: Getty Images
Fyrirliðinn Mark Noble hefur skrifað undir nýjan samning hjá West Ham og er hann nú samningsbundinn til ársins 2020.

Þessi 27 ára gamli miðjumaður hefði orðið samningslaus í sumar, en hann mun nú eyða næstu árum hjá Lundúnarliðinu.

Noble hefur spilað með aðalliði West Ham frá árinu 2005 eftir að hafa komið upp í gegnum hina frægu akademíu liðsins, auk þess sem hann spilað með Hull og Ipswich sem lánsmaður árið 2006.

Noble á að baki 268 deildarleiki með West Ham og hefur skorað 30 mörk.
Athugasemdir
banner
banner