Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 27. febrúar 2015 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Wenger reykti á bekknum hjá Monaco
Mynd: Getty Images
Nýlegt myndband er að fara sem eldur um sinu á netheimum í dag þar sem Arsene Wenger sést reykja sígarettu á varamannabekk AS Monaco.

Wenger stýrði Monaco í franska boltanum áður en hann tók við japanska liðinu Nagoya Grampus og loks Arsenal.

Wenger er einn þeirra knattspyrnustjóra sem hefur verið hvað harðorðastur í garð knattspyrnumanna sem reykja og refsar leikmönnum sínum sem sjást reykja á almannafæri.

Þetta myndband er rúmlega 20 ára gamalt, frá tíma þar sem reykingar voru ekki bannaðar kringum íþróttaviðburði.


Athugasemdir
banner
banner
banner