Lukas Piszczek, leikmaður Borussia Dortmund, mun ekkert spila næstu sex vikurnar eftir að hafa meiðst í 2-1 tapi liðsins gegn Juventus í vikunni
Pólverjinn meiddist illa á ökkla eftir harða tæklingu Paul Pogba, en sá slapp við áminningu fyrir brotið.
Pólverjinn meiddist illa á ökkla eftir harða tæklingu Paul Pogba, en sá slapp við áminningu fyrir brotið.
Piszczek hefur glímt við erfið meiðsli undanfarin tímabil og er þetta talsvert áfall fyrir Dortmund fyrir komandi átök.
Hann verður ekki með í síðari leik liðana um miðjan mars, auk þess sem liðið þarf á öllum stigum að halda í deildinni heima fyrir eftir að vera nýkomið upp fyrir fallsæti.
Athugasemdir