Heimild: BBC
Sjö menn hafa viðurkennt aðild sína að kynþáttafordómamálinu umtalaða, þar sem hópur stuðningsmanna Chelsea meinaði þeldökkum manni inngöngu í neðanjarðarlest í London.
Mennirnir sungu níðsöngva og komu í veg fyrir að maðurinn kæmist upp í lestina en vissu ekki af manni með myndavél sem tók allt upp og setti á veraldarvefinn.
Mennirnir sungu níðsöngva og komu í veg fyrir að maðurinn kæmist upp í lestina en vissu ekki af manni með myndavél sem tók allt upp og setti á veraldarvefinn.
Atvikið átti sér stað degi eftir jafntefli Chelsea við Paris St-Germain í höfuðborg Frakklands.
Breska lögreglan birti myndir af þeim seku og skipaði þeim að gefa sig fram á næstu lögreglustöð.
Knattspyrnufélagið Chelsea er þegar búið að setja fimm stuðningsmenn í bann frá Stamford Bridge, heimavelli félagsins, vegna atviksins.
Athugasemdir