Birkir Bjarnason er ánægður með vallaraðstæður í Kasakstan fyrir leikinn mikilvæga á morgun. Birkir hefur verið að leika vel með Pescara í ítölsku B-deildinni.
„Við byrjuðum mjög illa og fórum hægt af stað enda nánast nýtt lið og nýr þjálfari. Svo höfum við verið mjög góðir eftir jól og erum komnir í umspilssæti," segir Birkir um tímabilið á Ítalíu.
„Ég er í mjög góðu formi og er byrjaður að skora aftur. Við erum búnir að vera að spila 4-4-2 og ég hef leikið á kantinum eins og ég hef verið að gera með landsliðinu."
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir