Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 27. mars 2015 18:30
Magnús Már Einarsson
Ingvar Ásbjörn og Ólafur Örn í Fjarðabyggð (Staðfest)
Ingvar Ásbjörn Ingvarsson.
Ingvar Ásbjörn Ingvarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjarðabyggð hefur fengið Ingvar Ásbjörn Ingvarsson og Ólaf Örn Eyjólfsson til liðs við sig á láni.

Ingvar kemur á láni frá FH en hann er miðju og kantmaður.

Ingvar er fæddur árið 1995 en hann gekk upp úr öðrum flokki síðastliðið haust.

Ólafur Örn kemur á láni frá Víkingi en hann lék lengst af í yngri flokkunum með HK.

Ólafur er miðjumaður sem er fæddur árið 1994 en hann spilaði ellefu leiki í fyrstu deildinni á láni hjá KV á síðasta tímabili.

Fjarðabyggð mætir Grindavík í Lengjubikarnum í Akraneshöllinni klukkan 21:00 í kvöld.

Ólafur er kominn með leikheimild fyrir þann leik en Ingvar getur spilað sinn fyrsta leik á sunnudag þegar Fjarðabyggð mætir ÍA.
Athugasemdir
banner
banner
banner