Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 27. mars 2015 09:00
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: Mirror 
Miðjumaður Valencia orðaður við Chelsea
Andre Gomes í leik með Valencia.
Andre Gomes í leik með Valencia.
Mynd: EPA
Andre Gomes, 21 árs gamall miðjumaður Valencia, er undir smásjánni hjá Chelsea eftir að hafa spilað frábærlega í spænsku deildinni í vetur.

Njósnarar á vegum Chelsea hafa reglulega fylgst með Gomes á tímabilinu og er Jose Mourinho, stjóri liðsins, sagður vera spenntur fyrir því að fá þennan samlanda sinn til Englands.

Gomes og Mourinho eru í þokkabót með sama umboðsmann sem gæti liðkað fyrir samningaviðræður.

Valencia mun hinsvegar ekki sleppa leikmanninum nema að Chelsea kaupi upp samning hans fyrir 36 milljónir punda. Enska félagið er hinsvegar sagt vera að tilbúið 26 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner