fös 27. mars 2015 23:00
Alexander Freyr Tamimi
Ödegaard mjög hrifinn af Modric
Ödegaard hrósar Modric í hástert.
Ödegaard hrósar Modric í hástert.
Mynd: Getty Images
Norska undrabarnið Martin Ödegaard hrósar liðsfélaga sínum hjá Real Madrid, Luka Modric, í hástert.

Þessi 16 ára gamli miðjumaður gekk til liðs við Evrópumeistarana frá Stromsgödset í janúar og spilar með varaliðinu. Hann æfir hins vegar oft með aðalliðinu. Hann er mjög hrifinn af því sem hann hefur séð frá Modric.

,,Hann er einn sá allra besti. Hann höndlar það vel þegar það er pressað á hann og gefur boltann á réttan tíma," sagði Ödegaard við TV Sport.

,,Hann hjálpar liðsfélögum sínum að fá pláss og hann er sérstaklega góður á boltanum."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner