Sigurbjörn Hreiðarsson fagnar því að Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði hafi gefið kost á sér í leikinn gegn Kasakstan á morgun þrátt fyrir að hann hafi orðið faðir í fyrsta skipti í vikunni.
Aron hefur verið með íslenska liðinu í Kasakstan til að undirbúa sig fyrir leikinn á morgun. Hann missti því að fæðingunni hjá frumburði sinum.
Aron hefur verið með íslenska liðinu í Kasakstan til að undirbúa sig fyrir leikinn á morgun. Hann missti því að fæðingunni hjá frumburði sinum.
,,Eins og sannur fyrirliði. Þetta er mikilvægur leikur og hann er klárlega gríðarlega mikilvægur fyrir þetta lið. Það er frábært að hann skuli koma í þetta verkefni,“ sagði Sigurbjörn í sjónvarpsþætti Fótbolta.net í gær en Guðjón Guðmundsson tók undir með honum.
,,Það er algjörlega frárt og þetta sýnir karakterinn hjá honum. Það er ekki sjálfgefið að gera svona hluti," sagði Guðjón.
Sigurbjörn er sjálfur faðir en hann missti ekki af fæðingum vegna leikja á ferli sínum. ,,Maður stillti þetta af inn á tímabilið,“ sagði Sigurbjörn léttur í bragði í þættinum.
Smelltu hér til að horfa á sjónvarpsþáttinn
Athugasemdir