Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 27. apríl 2015 21:40
Ívan Guðjón Baldursson
Charlton: Bournemouth gæti tapað 19-0
Mynd: Getty Images
Bournemouth er svo gott sem komið upp í úrvalsdeildina en þó gæti liðið misst af sæti sínu ef markatalan bregst.

Til þess að markatalan bregðist þarf Middlesbrough að vinna upp 19 marka mun sem er á milli liðanna.

Lokaleikur Bournemouth er gegn Charlton, sem er í 10. sæti deildarinnar og á ekki möguleika á umspilssæti, á meðan Middlesbrough mætir Brighton, sem rétt sleppur við fall í ár.

„Bournemouth fagnar eins og það sé ekki möguleiki á því að tapa 19-0 á The Valley á laugardaginn. Við sjáum til... #cafc" stendur í Twitter færslu frá knattspyrnufélaginu Charlton.



Athugasemdir
banner
banner
banner