Dagur með Pape Mamadou Faye, leikmanni Víkings, sló rækilega í gegn hér á Fótbolta.net í fyrra.
Þar var meðal annars skellt sér inn í klefann hjá Víkingur og Pape fullyrti að Víkingur væri með versta meistaraflokksklefa á Íslandi.
Víkingar brugðust við og nú er kominn heitur pottur í klefann.
„Ég sagði einmitt við strákana að þeir hefðu tekið gagnrýnina sem ég kom með í fyrra. Klefinn er aðeins öðruvísi og nú er kominn pottur og ísbað. Svo eru komnar nýjar hillur. Stjórnin á hrós skilið fyrir þetta," sagði Pape í viðtali á Vísi.
Viðtalið má sjá hér að neðan en með því að smella hér er hægt að horfa á Dag með Pape. Hágæðaefni.
Athugasemdir