Stjarnan vann 1-0 sigur gegn KR í Meistarakeppni KSÍ í kvöld og er því meistari meistaranna. Garðabæjarliðið var nokkuð laskað í leiknum en meiðsli og veikindi hafa verið að herja á hópinn.
Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 0 KR
„Það er frábært að ná sigri í síðasta leik fyrir Íslandsmótið. Ég held að þetta verði hörkumót, liðin hafa styrkst sig mikið," segir Halldór Orri Björnsson.
„Við erum komnir með hörkubreidd. Það er rosalega erfitt að vinna sér inn sæti í byrjunarliðinu þegar allir eru heilir. Það er fullt af ungum strákum sem eru klárir í þetta mót."
Stjörnumenn hafa verið að glíma við magakveisu, veikindi og almenn leiðindi.
„Þetta gerist nokkrum dögum eftir að við komum heim úr æfingaferðinni. Ég veit ekki hvað þeir voru að éta þegar þeir komu heim. Menn hafa verið liggjandi með bullandi niðurgang og magakveisu. Ég held að menn jafni sig á þessu fyrir fyrsta leik."
Stjarnan heimsækir ÍA í fyrsta leik á sunnudag.
„ÍA er með hörkulið. Ætli það verði ekki 20 metrar á sekúndu og þeir láti finna vel fyrir sér," segir Halldór en viðtalið má sjá í heild í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir