„Þetta var ágætis leikur og það var óþarfi að tapa honum," sagði Óskar Örn Hauksson eftir 1-0 tap KR gegn Stjörnunni í meistarakeppni KSÍ í kvöld.
Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 0 KR
Óskar Örn er kominn aftur til KR eftir stuttan tíma í láni hjá Edmonton í Kanada.
„Það er gott að vera kominn aftur. Þetta var að stefna í vitleysu fyrir mína hönd fótboltalega séð og þetta er dýrmætur tími á mínum ferli. Ég ætla ekki að eyða honum í einhvern óþarfa."
Óskar Örn segist bíða spenntur eftir sumrinu en KR-ingar hefja leik gegn FH eftir viku.
„Ég held að deldin hafi sjaldan verið jafn spennandi fyrirfram. Það eru margir góðir strákar í deildinni og mörg góð lið. Ég held að þetta verði mjög skemmtilegt mót."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir