Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mán 27. apríl 2015 09:51
Magnús Már Einarsson
Sturridge mögulega ekki meira með á tímabilinu
Sturridge hefur lítið dansað í vetur.
Sturridge hefur lítið dansað í vetur.
Mynd: Getty Images
Daniel Sturridge, framherji Liverpool, mun mögulega ekki koma meira við sögu á þessu tímabili.

Sturridge hefur verið mikið meiddur á tímabilinu og hann hefur ekkert spilað síðan í bikarleiknum gegn Blackburn í byrjun mánaðarins.

Liverpool mætir Hull annað kvöld og ljóst er að Sturridge verður ekki með þar.

Liverpool á fimm leiki eftir í ensku úrvalsdeildinni og óvíst er hvort Sturridge nái að taka þátt í þeim.

„Við sjáum til hvort hann muni snúa aftur á þessu tímabili eða á undirbúningstímabilinu," sagði Brendan Rodgers stjóri Liverpool á fréttamannafundi í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner