Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 27. apríl 2017 21:48
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Guardiola: Ég veit hversu erfitt er að spila við Man Utd
Guardiola hvetur sína menn áfram í kvöld
Guardiola hvetur sína menn áfram í kvöld
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Manchester City var ánægður með hversu fá færi Manchester United náði að skapa sér í markalausu jafntefli liðanna í kvöld.

„Við megum ekki gleyma á móti hvaða liði við mættum í dag. Þeir sköpuðu sér tvö góð færi og ég er ánægður," sagði Guardiola.

Guardiola segir það vera erfitt að mæta Manchester United.

„Ég veit hversu erfitt það er að mæta Manchester United. Við erum með gæði en þetta er erfitt þegar svona margir leikmenn eru að verjast." sagði Guardiola.

Það styttist í annan endann á ensku úrvalsdeildinni og er baráttan hörð um Meistaradeildarsætin.

„Allir leikir fram á síðasta leik verða úrslitaleikir. Við eigum erfiða leiki framundan og við vitum að það er ekki möguleiki á að tapa þessum leikjum. Allir leikir eru mikilvægir."
Athugasemdir
banner
banner