Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   fim 27. apríl 2017 23:02
Mist Rúnarsdóttir
Róbert Haralds: Góð lexía fyrir okkur
Frá leik liðanna á undirbúningstímabilinu
Frá leik liðanna á undirbúningstímabilinu
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
„Þetta var ekki alveg eins og við ætluðum okkur. Við komum eiginlega ekki til leiks í fyrri hálfleik. Það vantaði kraftinn í okkur,“ sagði Róbert Haraldsson, þjálfari nýliða Grindavíkur, sem máttu sætta sig við tap í fyrsta leik Pepsi-deildarinnar í ár.

Lestu um leikinn: Fylkir 1 -  0 Grindavík

„Fylkir kom okkur ekkert á óvart. Ég vissi að þær yrðu baráttuglaðar dömurnar þar og okkar stelpur og sérstaklega útlendingarnir sem hafa ekki spilað hér áður, og þekkja ekki þennan bolta, voru ekki tilbúnar. Svo aftur á móti kemur seinni hálfleikurinn og þá fannst mér vera eitt lið á vellinum þó að þær breikuðu á okkur í nokkur skipti. Það var kannski af því að við vorum komnar of framarlega. Ég hefði nú viljað fá sanngjarnt mark þarna í restina en svona er nú fótboltinn“, sagði Róbert.

„Þetta er góð lexía fyrir okkur. Stelpurnar vita núna í hvað þær eru komnar. Það er ekki nóg að vera góðar í fótbolta. Það þarf líka að hafa fyrir því eins og við íslendingar þekkjum“, sagði Róbert.

Grindavíkurliðið hefur gefið það út að það stefni á að berjast í efri hluta deildarinnar og Róbert segist hafa fulla trú á liðinu þrátt fyrir vonbrigðin í kvöld.

„Ég veit alveg hvað býr í liðinu og stelpurnar líka. Þetta er bara einn leikur af 18 og ég var eiginlega ekkert ánægður með að byrja hér. Næsti leikur líka á móti Haukum, það verður alveg hörkuleikur. Þetta eru lið sem er spáð falli og það er alltaf erfitt að spila á móti þeim,“ sagði Róbert meðal annars en hægt er að horfa á allt viðtalið við hann í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner