banner
   fös 27. apríl 2018 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England um helgina - Arsenal fer á Trafford
Mynd: Getty Images
Liverpool tekur á móti Stoke í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Liðin mætast í hádeginu á morgun og verður leikurinn sýndur beint á Stöð 2 Sport.

Jóhann Berg Guðmundsson verður í beinni útsendingu þegar Burnley tekur á móti Brighton eftir hádegi.

Gylfi Þór Sigurðsson er enn meiddur og verður ekki með Everton gegn Huddersfield. Crystal Palace fær þá Leicester í heimsókn og Southampton tekur á móti Bournemouth.

Newcastle getur fellt West Bromwich Albion með sigri og lýkur fallbaráttulið Swansea deginum á erfiðum heimaleik gegn Chelsea. Englandsmeistararnir frá því í fyrra eru fimm stigum frá Tottenham í Meistaradeildarsæti.

Nýlega krýndir Englandsmeistarar Manchester City heimsækja West Ham á sunnudaginn áður en Manchester United fær Arsenal í heimsókn í risaslag. Mögulegt er að Arsene Wenger hvíli lykilmenn fyrir síðari undanúrslitaleik Evrópudeildarinnar gegn Atletico Madrid.

Tottenham tekur á móti Watford í síðasta leik helgarinnar á mánudagskvöldið.

Laugardagur:
11:30 Liverpool - Stoke (Stöð 2 Sport)
14:00 Burnley - Brighton (Stöð 2 Sport)
14:00 Huddersfield - Everton
14:00 Crystal Palace - Leicester
14:00 Southampton - Burnemouth
14:00 Newcastle - West Brom
16:30 Swansea - Chelsea (Stöð 2 Sport)

Sunnudagur:
13:15 West Ham - Manchester City (Stöð 2 Sport)
15:30 Manchester United - Arsenal (Stöð 2 Sport)

Mánudagur:
19:00 Tottenham - Watford (Stöð 2 Sport)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 28 20 4 4 70 24 +46 64
2 Liverpool 28 19 7 2 65 26 +39 64
3 Man City 28 19 6 3 63 28 +35 63
4 Aston Villa 29 17 5 7 60 42 +18 56
5 Tottenham 28 16 5 7 59 42 +17 53
6 Man Utd 28 15 2 11 39 39 0 47
7 West Ham 29 12 8 9 46 50 -4 44
8 Brighton 28 11 9 8 50 44 +6 42
9 Wolves 28 12 5 11 42 44 -2 41
10 Newcastle 28 12 4 12 59 48 +11 40
11 Chelsea 27 11 6 10 47 45 +2 39
12 Fulham 29 11 5 13 43 44 -1 38
13 Bournemouth 28 9 8 11 41 52 -11 35
14 Crystal Palace 28 7 8 13 33 48 -15 29
15 Brentford 29 7 5 17 41 54 -13 26
16 Everton 28 8 7 13 29 39 -10 25
17 Luton 29 5 7 17 42 60 -18 22
18 Nott. Forest 29 6 7 16 35 51 -16 21
19 Burnley 29 4 5 20 29 63 -34 17
20 Sheffield Utd 28 3 5 20 24 74 -50 14
Athugasemdir
banner
banner