Nýliðar Bournemouth í ensku úvalsdeildinni vonast til að fá kantmanninn Christian Atsu á láni frá Chelsea á næstu dögum.
Viðræður eru í gangi samkvæmt frétt Sky Sports.
Hinn 23 ára gamli Atsu kom til Chelsea frá Porto á 3,5 milljónir punda árið 2013.
Viðræður eru í gangi samkvæmt frétt Sky Sports.
Hinn 23 ára gamli Atsu kom til Chelsea frá Porto á 3,5 milljónir punda árið 2013.
Á nýliðnu tímabili var hann á láni hjá Everton eftir að hafa verið í láni hjá Twente í fyrra.
Bournemouth er að safna liði fyrir átökin í úrvalsdeildinni en Kieran Trippier bakvörður Burnley, Josh King framherji Blackburn og Dwight Gayle framherji Crystal Palace hafa einnig verið orðaðir við félagið.
Athugasemdir