Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 27. maí 2015 22:45
Arnar Geir Halldórsson
Balotelli verður áfram hjá Liverpool
Ekki á förum
Ekki á förum
Mynd: Getty Images
Mario Balotelli verður áfram á Anfield á næsta tímabili ef marka má orð umboðsmanns kappans.

Balotelli átti afleitt tímabil með Liverpool en hann var keyptur fyrir 16 milljónir punda frá AC Milan og átti að fylla upp í skarð Luis Suarez í sóknarlínu Liverpool.

Ítalanum mistókst hrapallega. Hann skoraði aðeins eitt deildarmark og heillaði ekki stuðningsmenn liðsins með frammistöðu sinni.

„Við höfum talað við Liverpool og hann verður áfram. Ég hef talað margoft við félagið og þeir eru ánægðir með hans fagmannlega viðhorf", sagði Mino Raiola, umboðsmaður Balotelli.

Athugasemdir
banner
banner
banner