Úrslitaleikur Evrópudeildarinnar verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í kvöld þar sem úkraínska félagið Dnipro mætir ríkjandi meisturum keppninnar, Sevilla.
Sevilla vann í fyrra eftir sigur gegn portúgalska liðinu Benfica í vítaspyrnukeppni.
Sevilla vann í fyrra eftir sigur gegn portúgalska liðinu Benfica í vítaspyrnukeppni.
Sevilla sló Fiorentina út í undanúrslitunum, 5-0 samanlagt, þvert gegn gangi beggja leikjanna sem ítalska liðið svo gott sem stjórnaði.
Dnipro sló Napoli út í undanúrslitum og svipaða sögu er að segja þar þar sem ítalska félagið tapaði samanlagt 2-1 þrátt fyrir að vaða í færum í bæði heima- og útileiknum.
Úrslitaleikurinn:
18:45 Dnipro - Sevilla (Stöð 2 Sport)
Athugasemdir