Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 27. maí 2015 10:14
Magnús Már Einarsson
Marca: Liverpool hefur áhuga á Ancelotti
Mynd: Getty Images
Spænska íþróttablaðið Marca heldur því fram að Liverpool hafi áhuga á að fá Carlo Ancelotti til að taka við af Brendan Rodgers.

Ancelotti var rekinn frá Real Madrid í byrjun vikunnar.

AC Milan og West Ham hafa sýnt Ancelotti áhuga en Liverpool hefur nú bæst í hópinn.

Talið er að Ancelotti vilji sjálfur taka sér árs frí frá fótbolta en Liverpool gæti mögulega breytt skoðun hans að sögn Marca.

Brendan Rodgers hefur verið stjóri Liverpool undanfarin þrjú ár en liðið hefur ekki unnið titil undir hans stjórn og framtíð hans er í óvissu.
Athugasemdir
banner
banner
banner