fös 27. maí 2016 12:06
Magnús Már Einarsson
Bikardráttur í beinni: Horfðu þegar dregið er í 16-liða úrslit
Sýnt beint á Facebook - Twitter lýsing hér fyrir neðan
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Dregið verður í 16-liða úrslit í Borgunarbikar karla í hádeginu í dag. Athöfnin hefst rétt upp úr klukkan 12.

Bein sjónvarpsútsending verður frá drættinum á Facebook síðu Fótbolta.net í hádeginu. Útsendinguna má sjá hér að neðan.

Þá verður að venju bein textalýsing á Twitter frá drættinum en við hvetjum lesendur til að nota kassamerkið #fotboltinet fyrir færslur um dráttinn.

Liðin í pottinum eru hér að neðan en níu lið úr Pepsi-deildinni eru þar á meðal. KR, Víkingur Ó. og Fjölnir eru úr leik.

Pepsi-deild: Breiðablik, FH, Fylkir, ÍA, ÍBV, Stjarnan, Valur, Víkingur R., Þróttur R.
1. deild:, Fram, Grindavík, Leiknir R., Selfoss
2. deild: Grótta, Vestri
3. deild: Víðir Garði


Athugasemdir
banner
banner
banner