Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 27. maí 2016 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Cantona sakar Deschamps um fordóma í garð leikmanna
Cantona ásakar landsliðsþjálfara Frakka um kynþáttarfordóma
Cantona ásakar landsliðsþjálfara Frakka um kynþáttarfordóma
Mynd: Getty Images
Deschamps er ekki sá vinsælasti hjá Cantona
Deschamps er ekki sá vinsælasti hjá Cantona
Mynd: Getty Images
Eric Cantona, fyrrum leikmaður Manchester United og franska landsliðsins, vill meina að kynþáttafordómar búi að baki þeirri ákvörðun Didier Deschamps, landsliðsþjálfari Frakka, að velja ekki Hatem Ben Arfa og Karim Benzema í landsliðshóp sinn fyrir EM sem hefst í næsta mánuði.

Cantona sagði þetta í samtali við Guardian, en Hatem Ben Arfa hefur leikið mjög vel með Nice í Frakklandi á tímabili og hefur meðal annars verið orðaður við Barcelona vegna frammistöðu sinnar.

Hann er þó ekki í landsliðshópi Frakka og sömu sögu má segja af Karim Benzema, sóknarmanni Real Madrid. Öllu auðveldara er að gefa ástæðu fyrir því af hverju Benzema sé ekki í hópnum, en hann flæktist inn í fjárkúgunuarmál í garð Mathieu Valbuena, sem einnig er í franska landsliðinu.

„Benzema er frábær leikmaður. Ben Arfa er frábær leikmaður. En Deschamps, hann er með mjög franskt nafn. Kannski er hann sá eini í Frakklandi til þess að vera með alvöru franskt nafn. Það er enginn í fjölskyldunni hans blandaður saman við neinn. Þau eru eins og mormón­arn­ir í Banda­ríkj­un­um," sagði Cantona.

„Það kem­ur mér því ekki á óvart að Deschamps hafi notað fjár­kúg­un­ar­málið sem ástæðu fyr­ir því að skilja Benzema eft­ir. Sérstaklega eft­ir að Manu­el Valls (for­sæt­is­ráðherra Frakk­lands) sagði að hann ætti ekki að spila fyrir Frakkland. Og Ben Arfa er kannski besti leikmaðurinn í Frakklandi í dag."

Hiti hefur áður verið á milli Cantona og Deschamps, en aðspurður hvort að hann væri í alvöru að gefa það í skyn að fyrrum liðsfélagi sinn væri með fordóma í garð Ben Arfa og Benzema svaraði Cantona á eftirfarandi hátt:

„Kannski nei, kannski já. Af hverju ekki? Eitt er fyrir víst - Benzema og Ben Arfa eru tveir af bestu leik­mönn­um Frakk­lands og þeir munu ekki spila á EM. Þeir koma báðir frá Norður-Afríku svo umræðan er opin," sagði Cantona.

Deschamps vildi ekki tjá sig um málið þegar Guardian tók hann tali.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner