Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   fös 27. maí 2016 00:49
Magnús Þór Jónsson
Ejub: Þetta var nánast fullkominn leikur!
Mynd: Þorsteinn Ólafs
Hörkuleikur í Garðabæ endaði að lokum illa fyrir lærisveina Ejubs í Víkingi í kvöld, hvernig var tilfinningin?

"Súr, mjög súr!  Maður spilar allan daginn og svo kemst maður ekki áfram.  En það þarf víst eitt lið að sitja eftir."

Lestu um leikinn: Stjarnan 9 -  8 Víkingur Ó.

Hann var býsna ánægður með sína menn.

"Mér fannst Víkingur spila virkilega vel í kvöld.  Taktíkin gekk vel og við náðum að vinna á þeirra veikleikum.  Við náðum að halda út alveg þangað til á síðustu tveim mínútunum og klára leikinn.  Mér fannst við eiga að gera betur þar þó við værum einum færri þegar þeir jöfnuðu.  Þetta var nánast fullkominn leikur".

Það gekk á ýmsu í meiðslum hjá Víkingum í kvöld og sjúkraþjálfarinn var í yfirvinnu þennan leik, eitthvað að frétta af því öllu?

"Það hefði verið gaman að taka saman hversu margar mínútur við vorum einum færri, það var örugglega samtals einhverjar 20 - 30 mínútur.  Ég vona að við fáum þessa menn til baka.  Við ætlum að senda Bjössa upp á slysó því við viljum vera vissir með hann eftir höfuðhöggið og Þorsteinn virðist vera nefbrotinn, vonandi verða þeir klárir á mánudaginn.  Kenan fór svo að finna til í hnénu og við urðum að taka hann útaf".

Nánar er rætt við Ejub í viðtalinu sem fylgir.


Athugasemdir
banner
banner
banner