Hörður Fannar Björgvinsson markmaður var hetja Stjörnumanna í mögnuðum bikarsigri á Víkingi Ólafsvík í vítakeppni.
Hann var nú ekki viss um hetjustimpilinn samt!
"Hetjan og ekki hetjan, er ekki sagt að markmenn eigi að verja tvö mörk að meðaltali í vítakeppni"
Hann var nú ekki viss um hetjustimpilinn samt!
"Hetjan og ekki hetjan, er ekki sagt að markmenn eigi að verja tvö mörk að meðaltali í vítakeppni"
Lestu um leikinn: Stjarnan 9 - 8 Víkingur Ó.
Þegar gengið var á hann viðurkenndi hann þó að tilfinningin hafi verið góð að labba inn í klefann eftir leik.
"Jú, það var frábært, bara geggjað að ná þessu. En við náðum þessu allir saman. Ég var stressaður bara fyrstu fimm í framlengingunni en þetta eru frábærir strákar sem hjálpuðu mér í gegnum þetta".
Hörður varði síðasta skot framlenginarinnar auk vítaspyrnanna og var það sannarlega lykilmóment. Hugsar maður eitthvað á mómentinu áður en skotið ríður af í slíkum aðstæðum?
"Ég man ekki nákvæmlega hvað ég hugsaði...en það hlýtur að hafa verið eitthvað svona - afsakið þetta - andskotinn!"
Nánar er spjallað við vítabanann Hörð í viðtalinu.
Athugasemdir