Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 27. maí 2016 20:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Memphis viðurkennir að hafa valdið vonbriðgum
Memphis Depay
Memphis Depay
Mynd: Getty Images
Memphis Depay, leikmaður Manchester United, viðurkennir að hann hafi ekki átt sitt besta tímabil með liðinu.

Flestir bjuggust við ansi miklu af Hollendingnum en hann hefur valdið miklum vonbrigðum.

Hann var ekki í hópnum í úrslitaleik enska bikarsins og byrjaði hann aðeins 13 leiki á tímabilinu og kom 16 sinnum af bekknum.

„Þetta er ekki búið að vera slæmt ár en þetta er heldur ekki búið að vera gott ár. Þetta er búið að vera sæmilegt. Ég býst við meiru af sjálfum mér og stuðningsmenn gera það líka."

„Þetta er búið að vera nýtt fyrir mig, að spila í ensku Úrvalsdeildinni og reynslan sem ég hef fengið er góð."

„Ég er hins vegar ennþá ungur, 22 ára og hef ennþá trú á mér," sagði Hollendingurinn.
Athugasemdir
banner
banner