Öllum leikjum dagsins er lokið í íslenska boltanum eftir góða sigra hjá Árborg og Geisla gegn Skallagrími og Álafoss.
Árborg og Skallagrímur eru bæði með þrjú stig eftir tvær umferðir á meðan Álafoss og Geisli voru að spila sinn fyrsta leik.
Árborg og Skallagrímur eru bæði með þrjú stig eftir tvær umferðir á meðan Álafoss og Geisli voru að spila sinn fyrsta leik.
Árborg hefur verið í mikilli toppbaráttu í 4. deildinni undanfarin ár og sönnuðu Sunnlendingarnir í dag að þeir ætla ekki að gefa neitt eftir.
4. deild - C riðill
Skallagrímur 1 - 4 Árborg
0-1 Aron Freyr Margeirsson ('21)
0-2 Tómas Kjartansson ('43)
1-2 Goran Jovanovski ('62)
1-3 Aron freyr Margeirsson ('90)
1-4 Daníel Ingi Birgisson ('91)
Rautt spjald: Goran Jovanovski, Skallag. ('90)
4. deild - D riðill
Álafoss 0 - 3 Geisli A.
0-1 Sjálfsmark ('8)
0-2 Árni Gísli Magnússon ('43)
0-3 Bergþór Atli Örvarsson ('45)
Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir