Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 27. maí 2017 08:15
Hafliði Breiðfjörð
Coerver Coaching International Camp á KA velli
Mynd: Coerver
Mynd: Coerver Coaching
Mynd: Coerver Coaching
Mynd: Coerver
Coerver Coaching í samstarfi við Knattspyrnufélag Akureyrar verður með International Camp á Akureyri 19.-23. júní.

Námskeiðið er fyrir alla drengi og stúlkur í 3.-6. flokki.

ALLIR ÞJÁLFARAR KOMA FRÁ COERVER COACHING OG ERU FRÁ URUGUAY,
PORTÚGAL, NORÐURLÖNDUM OG ÍSLANDI.

Erlendir þjálfarar eru m.a. Manuel Ojalvo frá Uruguay og Jorge Aquiar frá Portúgal. Manuel Ojalvo starfar bæði í sínu heimalandi(Uruguay) og á Spáni. Manuel hefur unnið með mörgum frægum leikmönnum og heldur reglulega námskeið fyrir þjálfara og leikmenn knattspyrnuakademíu Real Madrid.
Jorge Aquiar kemur frá knattspyrnuakademíu Porto sem er ein sú besta í Evrópu. Að auki starfar Jorge fyrir Coerver Coaching víðsvegar um Evrópu.


Íslensku þjálfararnir starfa allir fyrir Coerver Coaching á knattspyrnunámskeiðum og eru:

Slobodan Milisic - þjálfari Mfl karla hjá KF, fyrrum þjálfari Mfl karla hjá KA. Slobodan eða Míló(eins og hann er jafnan kallaður) er einnig fyrrum atvinnumaður í knattspyrnu og einn allra reyndasti þjálfari hér á landi.
Sandra María Jessen - leikmaður Þór/KA í Pepsi deild kvenna og landsliðskona í knattspyrnu.
Sandra María er þjálfari hjá Coerver Coaching á námskeiðum og einnig þjálfari yngri flokka KA

YFIRÞJÁLFARI: Heiðar Birnir Torleifsson yfirmaður Coerver Coaching á Íslandi.


Coerver Coaching er æfinga og kennsluáætlun sem hentar öllum
aldurshópum, en þetta námskeið er sniðið að þörfum iðkenda á
aldrinum 8-16 ára.

AÐALMARKMIÐ COERVER COCACHING:
Þjálfa færni, sjálfstraust og sköpunargleði hjá leikmönnum.
Gera leikinn skemmtilegan í æfingum og í leik.
Virða sigur en ekki meira en gott hugarfar og frammistöðu.
Bjóða upp á öruggt og lærdómsríkt umhverfi sem mætir best
þjálfunarmarkmiðunum.

DAGSKRÁ: MÁN - FÖS

LEIKMENN FÆDDIR: 2005-2008
Kl. 09.00-10.30 - Coerver Coaching æfing
Kl. 10.30-12.00 - Fyrirlestur + hvíld
Kl. 12.00-13.00 - Heitur matur í Lundarskóla
Kl. 13.00-14.30 - Coerver Coaching æfing

LEIKMENN FÆDDIR: 2001-2004
Kl. 10.45-12.15 - Coerver Coaching æfing
Kl. 12.15-13.15 - Heitur matur í Lundarskóla
Kl. 13.15 -14.45 - Fyrirlestur + hvíld
Kl. 14.45 -16.15 - Coerver Coaching æfing

Skráning er hafin og fer fram hér www.ka.felog.is/

Verð kr. 25.000,-
Allir leikmenn fá Coerver Coaching treyju frá Adidas

UPPLÝSINGAR:

Aðalbjörn Hannesson yfirþjálfari KA [email protected]
Heiðar Birnir Torleifsson yfirþjálfari Coerver Coaching
[email protected]
Athugasemdir
banner
banner