Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 27. maí 2017 05:55
Dagur Lárusson
England í dag - Chelsea á möguleika á tvennunni
Mun Conte vinna sinn annan bikar með Chelsea í dag?
Mun Conte vinna sinn annan bikar með Chelsea í dag?
Mynd: Getty Images
Einn leikur fer fram í enska boltanum í dag og er það hvorki meira né minna en úrslitaleikurinn í FA bikarnum.

Eins og flestir vita þá mætast þar Lundúnarliðin Chelsea og Arsenal. Chelsea sigraði Tottenham 4-2 í undanúrslitaleiknum sínum á meðan að Arsenal kom öllum á óvart og vann lið Manchester City 2-1 í framlengdum leik.

Chelsea varð enskur meistari á dögunum og eiga þeir því möguleika á að vinna tvennuna, vinni þeir þennan leik.

Mikið hefur verið talað um framtíð Arsene Wenger hjá Arsenal og eru sumir sem að halda því fram að framtíð hans ráðist á þessum leik. Það verður því fróðlegt að fylgjast með gangi mála eftir leikinn í dag.

Laugardagur 27.maí

16:30 Arsenal - Chelsea (Stöð 2 Sport)
Athugasemdir
banner
banner
banner