Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   lau 27. maí 2017 17:53
Valgerður Stella Kristjánsdóttir
Gunnar: Sveindís er alltaf tekin föstum töku
Gunnar Magnús Jónsson þjálfari Keflavíkur.
Gunnar Magnús Jónsson þjálfari Keflavíkur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var fyrsta tapið okkar í deildinni en við töpuðum í vítaspyrnukeppni í bikarnum um daginn. Það er alltaf ömurlegt að tapa, ekkert sem við ætluðum okkur en svona getur fótboltinn verið," sagði Gunnar Magnús Jónsson þjálfari Keflavíkur við Fótbolta.net eftir 1-3 tap heima gegn ÍR í 1. deild kvenna í kvöld.

Lestu um leikinn: Keflavík 1 -  3 ÍR

Keflavík sótti stíft í fyrri hálfleik en tókst ekki að skora þó liðið hafi leitað mikið á Sveindísi Jane Jónsdóttur í fremstu víglínu.

„Hún er mjög öflugur sóknarmaður og eitt af okkar sterkustu vopnum. Hin liðin vita af því og hún er tekin mjög föstum tökum alltaf, eðlilega," sagði Gunnar Magnús.

„En þrátt fyrir að vera 1-0 undir í hálfleik fannst mér fyrri hálfleikur góður hjá okkur, fínt spil og fín færi. Í seinni hálfleik líka þegar við sýndum karakter og náðum að jafna. En eftir jöfnunarmarkið datt þetta töluvert niður hjá okkur. Fótboltinn er ekki alltaf sanngjarn."

„Ef tölfræði á Úrslit.net lýgur ekki þá eru 29 marktilraunir hjá okkur á móti 9. 14 á rammann og 4. Þær voru grimmar, komu hingað með bakið upp við vegg og voru fastar og sterkar fyrir. Krafturinn vann í dag."


Nánar er rætt við Gunnar Magnús í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner