Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 27. júní 2016 16:18
Þorsteinn Haukur Harðarson
Bellerin orðaður við Barcelona
Mynd: Getty Images
Félagsskipti Dani Alves til Juventus frá Barcelona hafa hleypt lífi í sögusagnir þess efnis að bakvörðurinn Hector Bellerin sé á leiðinni til Barcelona.

Hector Bellerin er hægri bakvörður eins og Alves en Bellerin hefur undanfarið vakið athygli fyrir frammistöðu sína með Arsenal í ensku úrvalsdeildinni.

Bellerin, sem er 21 árs gamall, er öllum hnútum kunnugur hjá Barcelona enda upalinn í ungliða akademíu félagsins.

Hann var aðeins átta ára gamall þegar hann gekk í raðir Barcelona en þaðan fór hann síðan 16 ára gamall til Arsenal.

Bellerin er með spænska landsliðinu á EM í Frakklandi en hann hefur ekki komið við sögu til þessa.
Athugasemdir
banner
banner
banner