Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 27. júní 2016 15:17
Þorsteinn Haukur Harðarson
Byrjunarlið Ítalíu og Spánar: Buffon í marki Ítalíu
Mynd: Getty Images
Ítalía og Spánn mætast í fyrsta leik dagsins í 16-liða úrslitum EM en sigurvegarinn mætir Þjóðverjum í 8-liða úrslitum. Byrjunarliðin í leiknum eru klár.

Ítalir gera nokkrar breytingar frá leiknum gegn Írum í riðlakeppninni. Má þar nefna að Gianluigi Buffon er kominn í markið.

Spánverjar eru hinsvegar með óbreytt lið frá seinasta leik gegn Króatíu í riðlakeppninni. 

Ítalía:Buffon, De Sciglio, Chiellini, Florenzi, Pellé, Barzagli, De Rossi, Éder, Parolo, Bonucci, Giaccherini.

Spánn: De Gea, Pique, Busquets, Iniesta, Morata, Fabregas, Ramos, Juanfran, Jordi Alba, Silva, Nolito

Leikurinn hefst núna klukkan fjögur.
Athugasemdir
banner
banner
banner