Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 27. júní 2016 18:10
Elvar Geir Magnússon
Nice
Enskir í stúkunni klöppuðu fyrir íslenskum
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Íslenskir stuðningsmenn hafa hlýtt skilaboðum KSÍ og eru mættir vel tímanlega á völlinn. Fólk er byrjað að tralla og skemmta sér í stúkunni í Hreiðrinu í Nice.

Hópurinn tók góða rispu áðan og þeir Englendingar sem mættir voru í stúkuna klöppuðu fyrir okkar fólki.

Englendingar verða í miklum meirihluta í Hreiðrinu en þeir Íslendingar sem verða á vellinum ætla að láta því meira í sér heyra.

Ég spjallaði við Frey Alexandersson sem er í njósnateymi íslenska liðsins en hann gistir með strákunum á hóteli og segir að spennustigið í hópnum sé mjög gott.

Fótbolti.net er með öflugt teymi á Evrópumótinu og færir ykkur fjölmargar fréttir daglega. Einnig er fylgst grannt með gegnum helstu samskiptamiðla.
- Vertu með okkur á Twitter með því að nota kassamerkið #fotboltinet fyrir færslur um mótið.
- Fótbolti.net á Snapchat: Fotboltinet
- Fótbolti.net á Instagram: Smelltu hér til að sjá .Net á Instagram.
Fótbolti.net á Facebook: Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook.

FARÐU Á EM SÍÐU FÓTBOLTA.NET
Athugasemdir
banner
banner