Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 27. júní 2016 10:10
Magnús Már Einarsson
Nice
Fleiri fjölmiðlar fjalla um Ísland en leik Spánar og Ítalíu
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
Fleiri fjölmiðlar munu fjalla um leik Ísland og Englands í kvöld heldur en leik Ítalíu og Spánar sem fer fram í dag.

250 blaðamenn verða á leik Íslands og Englands í kvöld.

100 lýsendur frá 60 sjónvarpsstöðvum verða á leiknum en hann er sýndur í beinni víða um heim.

Þá verða 100 ljósmyndarar á staðnum til að festa leikinn á filmu. Íslenskir fjölmiðlamenn á leiknum verða í kringum 20.

Í stúkunni verða rúmlega 3000 íslenskir stuðningsmenn en leikur Íslands og Englands hefst klukkan 19:00 að íslenskum tíma í Nice.
Athugasemdir
banner
banner
banner