mán 27. júní 2016 22:16
Elvar Geir Magnússon
Nice
Heimir: Fáum vonandi fleiri miða á næsta leik - Og leikinn í undanúrslitum
Icelandair
Heimir var í skýjunum með stuðninginn í kvöld.
Heimir var í skýjunum með stuðninginn í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég vil byrja á því að þakka þessum hópi Íslendinga sem voru á leiknum," sagði Heimir Hallgrímsson, annar af landsliðsþjálfurum Íslands, í upphafi fréttamannafundar eftir leikinn í kvöld.

„Strákarnir á vellinum voru stórkostlegir en stuðningsmennirnir voru ótrúlegir. Þeir voru fámennir en gríðarlega háværir. Leiðinlegt hve fáir gátu fengið miða en vonandi getum við fengið fullt af fólki á Stade de France."

„Vonandi fáum við góðan fjölda miða á þann leik og leikinn eftir hann," sagði Heimir kíminn.

Íslenska landsliðið vann stórfenglegan sigur gegn Englandi í kvöld og tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Evrópumótsins þar sem leikið verður gegn Frakkland á sunnudag.

Fótbolti.net er með öflugt teymi á Evrópumótinu og færir ykkur fjölmargar fréttir daglega. Einnig er fylgst grannt með gegnum helstu samskiptamiðla.
- Vertu með okkur á Twitter með því að nota kassamerkið #fotboltinet fyrir færslur um mótið.
- Fótbolti.net á Snapchat: Fotboltinet
- Fótbolti.net á Instagram: Smelltu hér til að sjá .Net á Instagram.
Fótbolti.net á Facebook: Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook.

FARÐU Á EM SÍÐU FÓTBOLTA.NET
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner