Heimir Hallgrímsson, annar af landsliðsþjálfurum Íslands, var spurður út í frammistöðu Ragnars Sigurðssonar á fréttamannafundi eftir leik. Ragnar hefur verið magnaður á mótinu.
„Við erum ótrúlega sáttir með miðverðina okkar á mótinu og sem par hafa þeir verið frábærir," segir Heimir.
„Frammistaða Ragnars í kvöld er ein allra besta frammistaða sem miðvörður hefur sýnt í íslenska landsliðinu. Það kæmi mér á óvart ef þjálfarar hjá stórum liðum væru ekki að skrifa nafnið hans niður núna. Þeir hljóta að vera að gera það."
Ragnar var valinn maður leiksins í sigrinum sögufræga gegn Englandi. Hann átti hreint stórkostlegan leik eins og allir Íslendingar vita.
Athugasemdir