Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 27. júní 2016 19:15
Arnar Geir Halldórsson
Sjáðu markið: Brjáluð byrjun í Nice
Icelandair
Var það ekki?
Var það ekki?
Mynd: Getty Images
Eins og allir landsmenn vita stendur nú yfir leikur Íslands og Englands í 16-liða úrslitum á EM en hægt er að fylgjast með textalýsingu hér á Fótbolti.net.

Wayne Rooney kom Englendingum yfir með marki úr vítaspyrnu strax á 3.mínútu. Vítaspyrnan var dæmd á Hannes Þór Halldórsson þar sem hann braut klaufalega á Raheem Sterling.

Okkar strákar voru hinsvegar ekki lengi að svara því Ragnar Sigurðsson jafnaði mínútu síðar þegar hann var réttur maður á réttum stað í teignum eftir langt innkast frá fyrirliðanum Aroni Einari Gunnarssyni.

Aðeins liðu 34 sekúndur á milli markanna. Hreint ótrúleg byrjun.

Hér fyrir neðan má sjá myndband af marki Ragnars en þetta var hans annað mark fyrir Ísland í sextugasta leik sínum.



Athugasemdir
banner
banner
banner