Ríkislögreglustjóri hefur birt tilmæli til íslenskra stuðningsmanna fyrir leik Íslands og Englands í Nice í kvöld.
Samgöngur að leikvanginum í Nice taka langan tíma og er Íslendingum ráðlagta ð leggja af stað á völlinn í síðasta lagi þremur klukkutímum fyrir leik.
Fanzone opnar í bænum klukkan 16:00 að frönskum tíma en Íslendingum er ráðlagt að leggja síðan af stað á völlin ní síðasta lagi klukkan 18:00 að frönskum tíma.
Samgöngur að leikvanginum í Nice taka langan tíma og er Íslendingum ráðlagta ð leggja af stað á völlinn í síðasta lagi þremur klukkutímum fyrir leik.
Fanzone opnar í bænum klukkan 16:00 að frönskum tíma en Íslendingum er ráðlagt að leggja síðan af stað á völlin ní síðasta lagi klukkan 18:00 að frönskum tíma.
Tilkynning frá Ríkislögreglustjóra á Facebook
Þá fer þetta að bresta á. Fiðringurinn farinn að magnast í maganum og baráttuandinn að að skerpast. Í sameiningu vinnum við þennan leik!
Við hvetjum alla til að mæta snemma á völlinn. Ferðalagið frá Fan-Zone að vellinum tekur að minnsta kosti klukkutíma og þá á eftir að fara í gegnum öryggisleit og annað.
Fan-Zone (Match-Zone) mun opna klukkan 16:00 og hefur Stuðningssveitin Tólfan auglýst að stuðningsmenn muni hittast þar klukkan 16:00. Hægt er að kaupa miða í rútur frá Fan-Zone að leikvangi og til baka fyrir 3 evrur. Miðana er hægt að kaupa, gegn framvísun miða á leikinn, frá klukkan 11:00 á eftirtöldum stöðum: Fan Zone (Jardins Albert 1er - Nice Centre Ville), Parvis Gare SNCF Nice Ville (aðalbrautarstöðin) og á MIN bílastæðinu. Rútur munu fara frá Fan-Zone, MIN bílastæðinu, brautarstöðinni og flugvellinum með mjög reglulegu og þéttu millibili frá klukkan 16:00. Síðasta rútan mun fara klukkan 19:00. Rúturnar fara ekki alla leið að leikvanginum og þarf því að ganga stuttan spöl, um 20 mínútur, að vellinum. Rúturunar stoppa ekki á leiðinni þannig að það er ekki hægt að taka rúturnar á öðrum stöðum en þessum. Leikvangurinn opnar 3 tímum fyrir leik og því mælum við með því að leggja ekki af stað frá Fan-Zone síðar en 18:00, í allra síðasta lagi.
Inngangur sem ætlaður er íslenskum stuðningsmönnum er suð-austur inngangurinn og er því gengið beint að honum frá stoppistöð rútanna. Við minnum á vallarreglur UEFA, sem meðal annars heimila ekki stóra bakpoka af öryggisástæðum.
Að leik loknum mun síðasta rúta til baka leggja af stað 90 mínútum eftir að leikur hefur verið flautaður af.
Fótbolti.net er með öflugt teymi á Evrópumótinu og færir ykkur fjölmargar fréttir daglega. Einnig er fylgst grannt með gegnum helstu samskiptamiðla.
- Vertu með okkur á Twitter með því að nota kassamerkið #fotboltinet fyrir færslur um mótið.
- Fótbolti.net á Snapchat: Fotboltinet
- Fótbolti.net á Instagram: Smelltu hér til að sjá .Net á Instagram.
Fótbolti.net á Facebook: Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook.
FARÐU Á EM SÍÐU FÓTBOLTA.NET
Athugasemdir