Ísland og England mætast í 16-liða úrslitum EM í knattspyrnu í kvöld en leikurinn hefst klukkan 19:00. Samkvæmt dagskránni á Stöð2Sport verður markaþáttur Pepsídeildar kvenna sýndur á sama tíma.
Búast má við því að áhorf á þáttinn verði afar takmarkað enda verða líklega flestir límdir við skjáinn ða horfa á landsleikinn.
Rakel Logadóttir, sem hefur verið einn af sérfræðingum Pepsídeildar kvenna, skorar á Stöð2Sport á Twitter þar sem hún óskar eftir því að markaþættinum verði frestað þar til eftir leikinn.
Færslu hennar má sjá hér að neðan.
Skora á @Stod2SportLive að sýna #pepsikvk mörkin eftir Landsleikinn en ekki kl 19:15.
— Rakel Logadóttir (@rakelloga) June 27, 2016
Athugasemdir