Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá nokkrum einasta manni að Ísland mætir Englandi í 16-liða úrslitum EM í kvöld. Samkvæmt veðmálasíðum þykir ansi ólíklegt að íslenska liðið nái að sigra leikinn.
Stuðullinn á einni stærstu veðmálasíðu heimsins, Bet365.com er vægast sagt afgerandi. Þar er stuðullinn 9.00 á íslenskan sigur en 1.53 á enska sigur.
Veðji einhver á sigur íslenska liðsins í leiknum og Ísland vinnur leikinn mun sá hinn sami því fá nífalda upphæð til baka.
Til samanburðar má benda á að í leik Spánar og Ítalíu í dag er stuðullinn á sigur Spánverja 2.15 og 4.33 á sigur Ítalíu.
Athugasemdir