Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 27. júní 2017 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Bayern er besta félagið fyrir Lewandowski"
Lewandowski hefur raðað inn mörkum með Bayern.
Lewandowski hefur raðað inn mörkum með Bayern.
Mynd: Getty Images
Umboðsmaður Pólverjans Robert Lewandowski, sóknarmanns Þýskalandsmeistara Bayern München, telur enn að Bayern sé besta félagið fyrir skjólstæðing sinn.

Lewandowski hefur raðað inn mörkum með Bayern undanfarin ár, en á liðnu tímabili gerði hann 43 mörk, þar af 30 í þýsku deildinni.

Í síðustu viku bárust fréttir af því að hann væri fúll út í lið sitt og liðsfélaga. Fyrir lokaumferðina átti hann möguleika á markakóngstitlinum, en ekkert var spilað upp á að láta hann skora.

Pólskur umboðsmaður leikmannsins er búinn að segja sitt um málið.

„Ég hef alltaf sagt að Bayern sé besta félagið fyrir þróun hans. Skoðun mín hefur ekki breyst, ekki í dag og ekki í gær," sagði Cesary Kucharski við pólska fjölmiðla.

Lewandowski er samningsbundinn Bayern til 2021.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner