Samúel Arnar Kjartansson hefur farið á kostum með Ými í 4. deildinni í sumar en hann hefur skorað 19 mörk í þeim fimm leikjum sem hann hefur verið í byrjunarliði í sumar.
Mörk Samúels í sumar
Árborg 1 - 3 Ýmir (1 mark)
Úlfarnir 0 - 8 Ýmir (5 mörk)
Ýmir 2 - 1 Kormákur/Hvöt (2 mörk)
Hrunamenn 1 - 12 Ýmir (4 mörk)
Kóngarnir 0 - 14 Ýmir (7 mörk)
„Ég er rólegri inn á velli núna en áður og svo eru liðsmennirnir allt strákar sem maður hefur spilað með í gegnum tíðina og þekkja mig vel," sagði hinn 28 ára gamli Samúel aðspurður út í lykilinn á bakvið velgengina í sumar.
Samúel er uppalinn hjá HK en hann hefur í gegnum tíðina mest leikið með uppeldisfélagi sínu sem og Ými í 4. deildinni. Árið 2008 skoraði Samúel 22 mörk í 13 leikjum með Ými. Hvert er markmið hans í markaskorun í sumar?
„Úr því sem komið er þá verð ég eiginlega að bæta fyrra met sem eru 22 mörk. Það væri gaman að setja nýtt met í íslenska boltanum. Annars bara reyna að spila eins mikið og ég get þar sem ég hef meiðst mikið í gegnum tíðina og fagna hverjum leik."
Samúel skoraði sjö mörk í 14-0 sigri á Kóngunum í gær en fjögur af mörkunum komu á síðustu fimm mínútunum. Samúel segist aldrei verða saddur í leikjum þó staðan sé örugg. „Nei. Ég held að það sé eðli framherja að skora alltaf annað mark. Sennilega er það formið og hausinn að klára leiki," sagði Samúel.
Athugasemdir