Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 27. júní 2017 15:15
Magnús Már Einarsson
Henry í læknisskoðun hjá Everton
Mynd: Getty Images
Everton er að ganga frá kaupum á Henry Onyekuru framherja KAS Eupen í Belgíu.

Hinn tvítugi Henry skoraði 22 mörk í belgísku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Arsenal, West Ham og fleiri félög höfðu sýnt Henry áhuga en nú er Everton að landa honum.

Talið er að Henry fari farið í læknisskoðun hjá Everton í gær.

Henry verður líklega lánaður beint aftur í belgísku úrvalsdeildina til Anderlecht. Everton vill að hann haldi áfram þróun sinni sem leikmaður þar.
Athugasemdir
banner
banner
banner