Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   þri 27. júní 2017 16:30
Elvar Geir Magnússon
Japanskt félag býður Totti samning
Hvað gerir Totti næst?
Hvað gerir Totti næst?
Mynd: Getty Images
Francesco Totti er orðinn 40 ára og hefur bundið enda á sögulegan feril sinn hjá Roma. Óvíst er hvert næsta skref á ferli hans verður en japanska félagið Tokyo Verdy hefur boðið honum samning.

Totti er goðsögn í Róm enda var hann 25 ára hjá Roma og lék 786 leiki fyrir félagið.

Möguleiki er á því að Totti spili fyrir annað félag áður en hann leggur skóna á hilluna.

Tokyo Verdy er í B-deildinni í Japan og segja fjölmiðlar í Asíu að Totti þurfi ansi há laun til að ganga frá slíkum samningi.

Einnig hefur verið rætt um möguleikann á því að Totti fari í bandarísku MLS-deildina og þá er mögulegt að hann leggi skóna á hilluna og taki að sér stjórnunarstarf hjá Roma.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner