Radja Nainggolan, belgískur miðjumaður Roma, hefur kryddað sögusagnirnar um framtíð sína með mynd á Instagram.
Hann hefur undanfarna daga verið orðaður við Manchester United.
Nú er spurning hvort Roma sé að missa annan leikmann í ensku úrvalsdeildina, en Mohamed Salah var á dögunum seldur til Liverpool. Nú gæti Nainggolan farið til erkifjenda Liverpool.

Hann hefur eins og áður segir verið orðaður við Man Utd undanfarnar daga í enskum fjölmiðlum, en hann ákvað að krydda orðróminn aðeins með mynd á Instagram.
Á myndinni er hann við sundlaugarbakkann að horfa á gott útsýni. Við myndina skrifar hann: „Að hugsa um hvað ég eigi að gera."
Hér að neðan má sjá myndina.
Athugasemdir