Eftir um klukkutíma hefst leikur Fram og Víkings á Laugardaldsvelli.
Smelltu hér til að sjá beina textalýsingu
Smelltu hér til að sjá beina textalýsingu
Heimamenn í Fram gera þrjár breytingar frá tapinu í Eyjum en Ósvald Jarl Traustason, Tryggvi Steinn Bjarnason og Alexander Már Þorláksson fara allir út liðinu.
Þeirra í stað koma þeir Einar Bjarni Ómarsson, Aron Þórður Albertsson og Guðmundur Steinn Hafsteinsson, sá síðastnefndi er að byrja sinn fyrsta leik í um það bil tvo mánuði.
Hjá Víkingunum fara þeir Ívar Örn Jónsson og Arnþór Ingi Kristinsson úr liðinu og þeirra stað koma þeir Tómas Guðmundsson og Halldór Smári Sigurðsson.
Framarar hafa verið í miklu basli undanfarið og eru dottnir niður í neðsta sæti deildarinnar og hafa aðeins unnið tvo leiki og tapað síðustu fjórum.
Víkingarnir hafa verið á mjög góðri siglingu en þetta er fyrsta tímabilið þeirra í Pepsi deildinni eftir nokkurra ára fjarveru. Þeir sita í fjórða sætinu og eru með jafn mörg stig og íslandsmeistarar KR.
Víkingarnir hafa unnið fjóra af síðustu fimm.
Smelltu hér til að sjá beina textalýsingu
Byrjunarlið Fram:
26. Hörður Fannar Björgvinsson (m)
4. Hafsteinn Briem
6. Arnþór Ari Atlason
8. Einar Bjarni Ómarsson
9. Haukur Baldvinsson
10. Jóhannes Karl Guðjónsson
13. Viktor Bjarki Arnarsson
15. Ingiberg Ólafur Jónsson
17. Aron Þórður Albertsson
19. Orri Gunnarsson
22. Guðmundur Steinn Hafsteinsson
Byrjunarlið Víkings:
1. Ingvar Þór Kale (m)
4. Igor Taskovic
5. Tómas Guðmundsson
6. Halldór Smári Sigurðsson
7. Michael Maynard Abnett
8. Kristinn Jóhannes Magnússon
10. Aron Elís Þrándarson
11. Dofri Snorrason
18. Kjartan Dige Baldursson
20. Pape Mamadou Faye
22. Alan Alexander Lowing
Athugasemdir