Gamla og góða Fjölnisliðið sýndi allar sínar bestu hliðar í 4-1 sigri gegn Þór í kvöld. Þetta var heldur betur langþráður sigur hjá Grafarvogsliðinu sem hafði ekki unnið síðan 8. maí gegn einmitt Þór.
„Ég er mjög sáttur við frammistöðu strákana, sérstaklega var fyrri hálfleikurinn góður. Við vorum skipulagðir og settum á þá þrjú mörk," sagði Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis.
„Þetta er léttir enda langt síðan við unnum síðast. Það er nóg eftir og við erum ekki hólpnir."
„Markið hjá Bergsveini var af dýrari gerðinni og ég á eftir að horfa á það tíu sinnum á video. Það er klárt. Frábærlega vel gert hjá fyrirliðanum."
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan
Athugasemdir