Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 27. júlí 2014 23:00
Daníel Freyr Jónsson
Lovren: Þetta er draumur að rætast
Dejan Lovren.
Dejan Lovren.
Mynd: Liverpool
Króatinn Dejan Lovren gekk í kvöld í raðir Liverpool frá Southampton fyrir 20 milljónir punda.

Þessi öflugi miðvörður segir það vera draum að rætast að hafa gengið í raðir Liverpool og að hann hlakki til að heyra stuðningsmannalagið You'll Never Walk Alone fyrir hvern leik.

,,Ég hlakka mest til að spila á Anfield að sjálfsöðu. Ég spilaði hérna í fyrra fyrir framan stuðningsmennina sem sungu 'You'll Never Walk Alone'. Það er mjög sérstakt fyrir alla leikmenn. Ég get ekki beðið eftir því að byrja," sagði Lovren eftir að hafa skrifað undir.

,,Ég veit að við höfum fleiri milljónir stuðningsmanna - Liverpool er meira en bara fótboltafélag."

,,Þetta hljómar ótrúlega og draumurinn hefur ræst. ég er svo glaður og stoltur yfir því að vera hér.
Athugasemdir
banner
banner