Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 27. júlí 2014 21:31
Magnús Már Einarsson
Stefán Logi í banni í undanúrslitum Borgunarbikarsins
Stefán Logi Magnússon.
Stefán Logi Magnússon.
Mynd: Ívar Atli Sigurjónsson
Stefán Logi Magnússon, markvörður KR, verður í leikbanni þegar liðið mætir ÍBV í undanúrslitum Borgunarbikarsins á fimmtudagskvöld.

Garðar Örn Hinriksson rak Stefán Loga af velli gegn Breiðabliki í Pepsi-deildinni í kvöld.

Stefán Logi fékk beint rautt spjald fyrir að brjóta á Elfari Árna Aðalsteinssyni fyrir utan vítateig.

Aron Bjarki Jósepsson var með boltann og því voru KR-ingar afar ósáttir með dóminn.

Sindri Snær Jensson leysti Stefán Loga af hólmi í kvöld og hann mun standa í markinu í Eyjum á fimmtudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner